Landmann 03313 handleiding
Handleiding
Je bekijkt pagina 23 van 60

23
FB-I-605BKXX
UPPLÝSINGAR UM ÖRUGGA NOTKUN
AÐGÁT!
■ AÐGÁT: Hætta er á kolmónoxíðeitrun. Ekki má nota eldstæðið í
lokuðu rými, heldur eingöngu utandyra!
■ Ekki má nota eldstæðið nema að það hafi verið sett rétt saman
samkvæmt þessum uppsetningar- og notkunarleiðbeiningum og
sé óskemmt.
■ ATHUGIÐ: Ekki má nota eldstæðið ef það er aflagað eða í
ólagi. Gæta verður að þessu fyrir hverja notkun.
■ Áður en eldstæðið er notað skal setja það upp á traustum,
stöðugum, láréttum, sléttum og eldþolnum fleti.
■ AÐGÁT! Fylgja verður gildandi reglum á hverjum stað, meðal
annars um leyfi, notkun, örugga fjarlægð og fleira.
■ Velja skal uppsetningarstað þannig að ekkert eldfimt efni
sé nálægt eldstæðinu eða geti borist í það. Aldrei má setja
eldstæðið upp undir trjágreinum! Fjarlægð frá eldfimu efni og
flötum umhverfis verður að vera að minnsta kosti 3metrar.
■ AÐGÁT! Haldið börnum og gæludýrum fjarri! Aldrei má
skilja eldstæðið eftir án eftirlits á meðan enn logar á því eða
það er enn heitt. Einkum verður að gæta þess að börn eða
einstaklingar sem eru ekki færir um að meta eða bregðast við
hættu á réttan hátt komist of nálægt heitu eldstæðinu.
■ AÐGÁT! Ekki má nota spritt eða bensín til að kveikja upp!
Aðeins má nota uppkveikiefni sem samræmist staðlinum EN
1860-3!
■ Í eldstæðinu má eingöngu brenna náttúrulegum eldiviði úr barr-
eða lauftré í viðeigandi stærð (ekki viðarpellettum).
■ Ekki má nota eldstæðið til að brenna sorpi. Ekki má nota
eldsneyti af rangri gerð eða sem ekki er mælt með. Auk þess má
ekki nota fljótandi eldsneyti.
■ AÐGÁT! Eldstæðið verður mjög heitt og ekki má færa það til
meðan það er í notkun!
■ Notist ekki í miklum vindi.
■ Halda skal hæfilegri fjarlægð meðan á notkun stendur. Þegar
koma þarf við eldstæðið, t.d. til að bæta á eldinn, skal nota
grillhanska (gegn hættu vegna hita) sem samræmast staðlinum
DIN EN 407 (flokki II). Einnig skal nota skörunginn. Jafnvel þótt
eldurinn sé slokknaður eru yfirborðsfletir áfram heitir í einhvern
tíma.
■ Ekki setja of mikinn eldivið í eldstæðið og gættu þess að
eldurinn verði ekki of mikill.
■ Ef eldur kemur upp: Kæfa skal eldinn með eldvarnarteppi eða
viðeigandi slökkvitæki.
Ef kveikt er upp með bensíni eða spritti geta orðið hvellir sem valda
stjórnlausri hitamyndun. Aðeins má nota hættulaust eldsneyti, t.d.
uppkveikikubba.
L
Besti eldiviðurinn er harðviður, þ.e. viður lauftrjáa á borð
við beyki, eik eða birki. Hann er mjög þéttur í sér og gefur
því frá sér jafnan varma í lengri tíma.
1. Staflaðu hluta eldiviðarins upp í eldstæðinu. Leggðu einn eða
tvo uppkveikikubba ofan á og kveikið í þeim.
2. Láttu uppkveikikubbana brenna í tvær til fjórar mínútur.
3. Bættu varlega á viði. Fleygðu aldrei viði í eldinn!
4. Settu lokið á eldstæðið eða lokaðu hurðinni á eldstæðinu.
Notaðu skörunginn til þess.
AÐ NOTKUN LOKINNI /
ÞRIF OG GEYMSLA
AÐGÁT!
■ Leyfa skal öllum hlutum eldstæðisins að kólna áður en tæmt er
úr því, það er þrifið, yfirbreiðslan er sett á það eða gengið er frá
því.
■ Alls ekki skal slökkva eldinn með vatni, því annars er hætta á
brunameiðslum.
■ Ekki má nota ætandi eða gróf hreinsiefni og ekki má nota
málmbursta. Annars geta yfirborðsfletir orðið fyrir skemmdum.
■ Ekki má fylla eldstæðið með vatni eða láta það standa lengi í
rigningu.
• Þegar allir hlutar eldstæðisins hafa kólnað skal fleygja öskunni á
umhverfisvænan hátt.
• Hreinsaðu eldstæðið með viðeigandi bursta eða blautum svampi
og dálitlum uppþvottalegi. Ef um mikil óhreinindi er að ræða má
nota venjulegt hreinsiefni sem notað er við þrif á heimilum.
• Áður en gengið er frá hlutum eldstæðisins skal leyfa þeim að
þorna eða þurrka af þeim.
• Geymist á þurrum stað í skjóli fyrir veðri og vindum.
FÖRGUN
Gæta skal hreinlætis við meðferð
vörunnar
og förgun á
úrgangsefnum. Aðeins má fleygja úrgangsefnum í þar til ætluð ílát úr
málmi eða óbrennanlegu efni. Fylgja skal reglum um förgun á hverjum
stað.
Þegar vörunni er fargað skal taka hana í sundur og skila málmi og
plasti til endurvinnslu.
Flokka skal umbúðir og skila þeim til endurvinnslu.
Framleitt í Kína.
IS
03313_LAG_FB-I-605_M_V1.indb 2303313_LAG_FB-I-605_M_V1.indb 23 26.10.2021 13:51:0926.10.2021 13:51:09
Bekijk gratis de handleiding van Landmann 03313, stel vragen en lees de antwoorden op veelvoorkomende problemen, of gebruik onze assistent om sneller informatie in de handleiding te vinden of uitleg te krijgen over specifieke functies.
Productinformatie
Merk | Landmann |
Model | 03313 |
Categorie | Niet gecategoriseerd |
Taal | Nederlands |
Grootte | 14994 MB |