Handleiding
Je bekijkt pagina 197 van 230

Öryggi - ÍSLENSKA 197
Öryggi við notkun
VIÐVÖRUN!
Hafið stöðugt eftirlit með eldunarferlinu.
VIÐVÖRUN!
Hætta á eldsvoða! Það gæti kviknað í fitu eða olíu sem ofhitnar. Aldrei skal fara frá eldun með fitu eða olíu.
VIÐVÖRUN!
Hætta á eldsvoða! Verið viss um að loftop séu aldrei hulin eða hindruð á neinn hátt.
VIÐVÖRUN!
Hætta á brunasárum!
• Eldunaráhöld og aðgengilegir hlutar tækisins geta orðið mjög heit við notkun. Gætið að því að snerta
ekki heita hluta.
• Ofnhurðin gæti orðið mjög heit við notkun.
• Setjið ekki málmhluti eins og hnífa, gaffla, skeiðar eða lok á eldunarsvæðið þar sem þessi hlutir geta
orðið mjög heitir.
VIÐVÖRUN!
• Notið grillið einungis með ofnhurðina lokaða.
• Notið ofnhanska eða kjöttengur. Grillhitarinn, grindin og aðrir aukahlutir ofns geta orðið mjög heit við
grillun.
VARÚÐ!
• Gangið úr skugga um að eldunarsvæðið og botn eldunaráhaldsins séu hrein og þurr fyrir notkun til að
tryggja betri hitaleiðni og hindra skemmdir.
• Setjið ekki blaut eldunaráhöld eða lok alsett gufu á eldunarsvæðin. Raki getur skaðað eldunarsvæðin.
• Kælið ekki niður eldunaráhöldin með því að setja þau á eldunarsvæðin sem voru ekki í notkun. Rakaþétt
vatnið sem kemur fram undir botni eldunaráhaldsins getur stuðlað að tæringu.
VARÚÐ!
Snúið ekki hitastigsveljaranum niður fyrir núllstöðuna þegar ofnhitastiginu er breytt. Þetta getur skemmt
hitastillinn.
VARÚÐ!
• Gangið úr skugga um að botn eldunaráhaldsins passi við þvermál eldunarsvæðisins. Ef eldunaráhaldið
er of lítið tapast hluti varmans og eldunarsvæðið gæti skemmst.
• Klæðið ekki ofnveggina með álþynnu. Álþynna hindrar hringrás lofts í ofninum, hindrar eldunarferlið og
eyðileggur glerungshúðunina.
• Setjið ekki ofnskúffur eða önnur eldunaráhöld á botn ofnsins.
• Setjið ekki djúpu ofnskúffuna í fyrstu brautina.
Öryggi við viðhald
VIÐVÖRUN!
Hætta á rafstuði!
• Reynið ekki að framkvæma neinar viðgerðir sjálf. Sé átt við tækið eða gert við það af öðrum en fagmanni
getur það valdið meiðslum eða skemmdum á tækinu. Það ógildir einnig ábyrgðina. Hafið þess í stað
samband við tæknimann.
• Skiptið ekki sjálf um rafmagnssnúru. Ef rafmagnssnúran er skemmd verður framleiðandi eða
viðurkenndur tæknimaður að skipta um hana til að forðast hættu.
Bekijk gratis de handleiding van Elvita CGS3740VN, stel vragen en lees de antwoorden op veelvoorkomende problemen, of gebruik onze assistent om sneller informatie in de handleiding te vinden of uitleg te krijgen over specifieke functies.
Productinformatie
| Merk | Elvita |
| Model | CGS3740VN |
| Categorie | Fornuis |
| Taal | Nederlands |
| Grootte | 19194 MB |







