Elvita CDM6602V handleiding
Handleiding
Je bekijkt pagina 294 van 301

294 Uppsetning - ÍSLENSKA
VIÐVÖRUN!
Fyrir þitt eigið öryggi:
• Notaðu ekki framlengingarsnúru eða millistykkiskló með þessari vöru.
• Ekki skal undir neinum kringumstæðum rjúfa eða fjarlægja jarðtenginguna úr rafmagnssnúrunni.
Rafmagnskröfur
• Skoðaðu merkiplötuna til að athuga málspennuna og tengdu uppþvottavélina við viðeigandi rafmagnsinntak.
• Notaðu öryggi af þeim styrk sem ráðlagt er. (10A/13A/16A), öryggi með tímaseinkun eða útsláttarrofa.
• Tengdu við sér rafrás sem er einungis notuð fyrir þetta tæki.
Raftenging
• Tryggðu að spenna og tíðni raftengingarinnar samsvari því sem stendur á merkiplötunni.
• Settu aðeins kló sem er rétt og áreiðanlega jarðtengd í rafmagnsinnstungu.
• Leitaðu til viðurkennds rafvirkja eða þjónustufulltrúa ef þú ert í vafa um hvort tækið sé rétt jarðtengt.
• Ef rafmagnsinnstungan sem tengja þarf tækið við hentar ekki fyrir klóna skal skipta um innstungu með aðstoð
viðurkennds rafvirkja.
VIÐVÖRUN!
Ekki nota millistykki eða því um líkt þar sem það gæti valdið ofhitnun og eldsvoða.
• Tryggðu að rafmagnstengillinn sé alltaf aðgengilegur eða að rofi sé innbyggður í föstum raflögnum í samræmi við
raflagnareglur, þannig hægt sé að aftengja tækið frá rafveitu.
VIÐVÖRUN!
Gakktu úr skugga um að uppþvottavélin sé rétt jarðtengd áður en hún er notuð.
Vélin staðsett
VIÐVÖRUN!
• Gætið þess að beygla ekki eða kremja rafmagnssnúruna.
• Ef rafmagnssnúran er skemmd verður henni að vera skipt út af framleiðandanum, þjónustuaðila
framleiðandans eða sambærilega hæfum einstaklingum til að forðast hættu.
VARÚÐ!
• Tækið er einungis ætlað fyrir: Notkun innandyra.
• Setja verður tækið upp á hreinu sléttu og traustu undirlagi og hallastilla það með stillanlegum fótum.
ATHUGAÐU!
• Uppþvottavélin er búin vatnsinntaki og frárennslisslöngu sem hægt er að staðsetja annað hvort á hægri
eða vinstri hlið til auðvalda rétta uppsetningu.
• Eftir því hvar rafmagnsinnstungan er gæti þurft að gera gat á hlið skápsins sem er næstur.
• Ef færa þarf uppþvottavélina skal reyna að hafa hana í lóðréttri stöðu. Ef það er alveg nauðsynlegt má
leggja hana á bakið.
Bekijk gratis de handleiding van Elvita CDM6602V, stel vragen en lees de antwoorden op veelvoorkomende problemen, of gebruik onze assistent om sneller informatie in de handleiding te vinden of uitleg te krijgen over specifieke functies.
Productinformatie
| Merk | Elvita |
| Model | CDM6602V |
| Categorie | Vaatwasser |
| Taal | Nederlands |
| Grootte | 35270 MB |







