Electrolux SensiCare 600 EFI622EX4E handleiding

196 pagina's
PDF beschikbaar

Handleiding

Je bekijkt pagina 131 van 196
Skuli tækið sent, er minnt á nauðsyn þess að
nota góðar og vel merktar umbúðir, fara að
fyrirmælum leiðarvísis, þegar hann kveður á
um sérstakan flutningsbúnað og möguleikana
á að tryggja tækið gegn flutningsskemmdum.
Ennfremur skal fylgja lýsing á bilun. Skuli
kvaddur til viðgerðarmaður, afgreiðir seljandi
varahluti til viðgerðarinnar á sinn kostnað
gegn því að honum séu endursendir hinir
gölluðu hlutir ef hann óskar.
Vinnulaun og ferðakostnað viðgerðarmanns
að ofangreindu marki (15 km) greiðir seljandi
eftir sundurliðuðum reikningi viðgerðamanns
enda beri reikningurinn með sér eftirtalin
atriði:
1. Heiti tækis, gerð, númer og
afgreiðslutíma, samkvæmt þessu
skírteini.
2. Viðgerðardag og lýsingu á framkvæmdri
viðgerð.
3. Fullt nafn og heimilisfang viðgerðarmanns
eða fyrirtækis þess sem viðgerðina
annaðist.
Ábyrgðin nær ekki til bilana, sem
framleiðanda eða seljanda verður ekki um
kennt, svo sem bilana, sem stafa af flutningi,
rangri meðferð eða misnotkun, slælegu
viðhaldi, slysni eða óhöppum,
náttúruhamförum, truflunum á rafkerfi hússins
eða veitunnar o.s.frv.
Ábyrgðin nær heldur ekki til óbeins tjóns
vegna hugsanlegra galla á tækinu, en
kaupanda er bent á möguleikana á að tryggja
sig gegn slíku hjá tryggingafélögum.
Skilyrði fyrir ábyrgðinni eru almenns eðlis, svo
sem að galli sé tilkynntur strax og hans kann
að verða vart og að ekki hafi verið átt við
tækið af aðilum óviðkomandi seljanda, nema í
samráði við hann.
*Bræðurnir Ormsson ehf veita ÞRIGGJA
ÁRA ÁBYRGÐ á öllum AEG þvottavélum á
Íslandi sem fyrirtækið annast sölu og
dreifingu á skv. skilmálunum hér að framan.
ÍSLAND
Þjónusta á AEG heimilistækjum fyrir
höfudborgarsvæðið er hjá
Raftækjaþjónustunni Lagmúla 8, simi
553-7500 og rafmagnsverkstæðum sem
tengd eru umboðsmönnum Bræðranna
Ormsson ehf. um land allt.
Bræðurnir Ormsson ehf.
Lágmúla 8, póstholf 8760
128 Reykjavík
Sími: 530-2800
Fax: 530-2806
www.ormsson.is
17. UMHVERFISMÁL
Endurvinna þarf öll efni merkt tákninu .
Setjið umbúðirnar í viðeigandi sorpílát til
endurvinnslu. Leggið ykkar að mörkum til
verndar umhverfinu og heilsu manna og dýra
og endurvinnið rusl sem fylgir raftækjum og
raftrænum búnaði. Hendið ekki
heimilistækjum sem merkt eru með tákninu
í venjulegt heimilisrusl. Farið með vöruna í
næstu endurvinnslustöð eða hafið samband
við sveitarfélagið.
ÍSLENSKA 131

Bekijk gratis de handleiding van Electrolux SensiCare 600 EFI622EX4E, stel vragen en lees de antwoorden op veelvoorkomende problemen, of gebruik onze assistent om sneller informatie in de handleiding te vinden of uitleg te krijgen over specifieke functies.

Productinformatie

MerkElectrolux
ModelSensiCare 600 EFI622EX4E
CategorieWasmachine
TaalNederlands
Grootte19589 MB