Electrolux SensiCare 600 EFI622EX4E handleiding

196 pagina's
PDF beschikbaar

Handleiding

Je bekijkt pagina 101 van 196
Vatnsþrýstingur við inntaksstað vatns frá úttakstengingunni
verður að vera á milli 0,5 bar (0,05 MPa) og 10 bar (1,0
MPa).
Teppi, mottur eða einhverjar gólfábreiður mega ekki hylja
lofttúðurnar undir tækinu.
Heimilistækið verður að vera tengt við vatnsveituna með
nýja slöngusettinu sem fylgir með, eða öðru nýju slöngusetti
sem viðurkennd þjónustumiðstöð útvegar.
Ekki má endurnýta gamlar slöngur.
Ef rafmagnssnúra er skemmd verður framleiðandi,
viðurkennd þjónustumiðstöð, eða svipað hæfur aðili að
endurnýja hana til að forðast hættu vegna rafmagns.
Áður en einhvert viðhald er framkvæmt skal slökkva á
heimilistækinu og aftengja klóna frá rafmagnsinnstungunni.
Ekki skal nota háþrýstan vatnsúða og/eða gufu til að
hreinsa heimilistækið.
Hreinsaðu tækið með rökum klút. Notaðu aðeins hlutlaus
þvottaefni. Notaðu ekki neinar vörur með svarfefnum,
stálull, leysiefni eða málmhluti.
Ef þurrkari er settur ofan á þvottavélina skaltu ganga úr
skugga um að þú notir rétt hleðslusett, samþykkt af
ELECTROLUX (sjá frekari ítaratriði í kaflanum
„Aukabúnaður - Hleðslusett“).
2. ÖRYGGISLEIÐBEININGAR
2.1 Uppsetning
Uppsetningin verður að fylgja viðeigandi
innanlandsreglugerðum.
Fjarlægðu allar umbúðir og
flutningsboltana, þar með talið
gúmmífóðringu með plastmilliskífu.
Geymdu flutningsboltana á öruggum stað.
Ef færa á heimilistækið í framtíðinni verður
að setja þá aftur í til að læsa tromlunni til
að koma í veg fyrir innri skemmdir.
Alltaf skal sýna aðgát þegar heimilistækið
er fært vegna þess að það er þungt.
Notaðu alltaf öryggishanska og lokaðan
skóbúnað.
Fylgdu leiðbeiningum um uppsetningu
sem fylgja með heimilistækinu.
Ekki setja upp eða nota skemmt
heimilistæki.
Ekki setja upp eða nota heimilistæki þar
sem hitastigið er undir frostmarki eða þar
sem tækið er útsett fyrir veðri og vindum.
Gólfsvæðið þar sem á að setja upp
heimilistækið verður að vera flatt, stöðugt,
hitaþolið og hreint.
Gættu þess að loftflæði sé á milli
heimilistækisins og gólfsins.
Þegar tækið er sett á sinn endanlega stað
skaltu athuga hvort það sé lárétt með hjálp
ÍSLENSKA 101

Bekijk gratis de handleiding van Electrolux SensiCare 600 EFI622EX4E, stel vragen en lees de antwoorden op veelvoorkomende problemen, of gebruik onze assistent om sneller informatie in de handleiding te vinden of uitleg te krijgen over specifieke functies.

Productinformatie

MerkElectrolux
ModelSensiCare 600 EFI622EX4E
CategorieWasmachine
TaalNederlands
Grootte19589 MB