Electrolux EW6T462E1E handleiding

172 pagina's
PDF beschikbaar

Handleiding

Je bekijkt pagina 107 van 172
Eftirfarandi málsgreinar útskýra hvernig þú
ættir að hreinsa hvern hluta.
11.2 Að fjarlægja aðskotahluti
Vertu viss um að vasar séu tómir og að
lausar einingar séu bundnar upp áður en
þú keyrir þína lotu.
Fjarlægðu aðskotahluti, (svo sem
málmklemmur, hnappa, mynt o.s.frv) sem þú
finnur ef til vill í síum og tromlunni. Sjá
efnisgreinarnar „Frárennslispumpan hreinsuð“
og „Inntaksslanga og lokasía hreinsuð“.
Farðu varlega með gluggatjöld. Fjarlægðu
krókana og settu gluggatjöldin í þvottanet eða
koddaver. Vinsamlega hafðu samband við
viðurkenndu þjónustumiðstöðina ef þörf
krefur.
11.3 Hreinsun að utan
Hreinsaðu heimilistækið eingöngu með mildri
sápu og volgu vatni. Þurrkaðu alla fleti
vandlega. Ekki nota ræstisvampa eða
hverskyns efni sem rispar.
VARÚÐ!
Ekki nota alkóhól, leysiefni eða
efnablöndur.
VARÚÐ!
Hreinsaðu ekki málmfleti með
klórblönduðu hreinsiefni.
11.4 Kalkhreinsun
Ef herslustig vatnsins á þínu svæði er
hátt eða meðalhátt mælum við með að
þú notir vatnskalkshreinsivöru fyrir
þvottavélar.
Kannaðu reglulega tromluna til að athuga
með kalkskán.
Venjulegt þvottaefni inniheldur þegar
vatnsmýkjandi efni, en við mælum með að af
og til sé keyrt kerfi með tómri tromlu og
afkalkandi vöru.
Fylgdu alltaf leiðbeiningunum sem er að
finna á umbúðum vörunnar.
11.5 Viðhaldsþvottur
Endurtekin og langvarandi notkun
lághitakerfa getur valdið útfellingum
þvottaefnis, kuskleifum og bakteríuvexti inni í
tromlunni og í belgnum. Þetta getur myndað
vonda lykt og myglu. Til að koma í veg fyrir
þessar útfellingar og til að hreinsa innri hluta
heimilistækisins skal keyra viðhaldsþvott
reglulega (að minnsta kosti mánaðarlega):
Sjá efnisgreinina „Tromlan hreinsuð“.
11.6 Tromlan hreinsuð
Kannaðu tromluna reglulega til að koma í veg
fyrir að ryð myndist.
Hreinsaðu tromluna með sérstökum vörum
fyrir ryðfrítt stál.
Fylgdu alltaf leiðbeiningunum sem er að
finna á umbúðum vörunnar.
Fyrir vandlega hreinsun:
Taktu allan þvottinn úr tromlunni.
Keyrðu Coton þvottakerfi á hæsta
hita. Bættu litlu magni af þvottadufti í
tóma tromluna til að skola út öllum
leifum sem eftir eru.
11.7 Þétting á loki
Skoðaðu þéttinguna reglulega og fjarlægðu
allar agnir að innanverðu. Hreinsaðu þegar
þörf er á með ammóníakkrem hreinisefni án
þess að rispa yfirborð þéttingarinnar
Fylgdu alltaf leiðbeiningunum sem er að
finna á umbúðum vörunnar.
ÍSLENSKA 107

Bekijk gratis de handleiding van Electrolux EW6T462E1E, stel vragen en lees de antwoorden op veelvoorkomende problemen, of gebruik onze assistent om sneller informatie in de handleiding te vinden of uitleg te krijgen over specifieke functies.

Productinformatie

MerkElectrolux
ModelEW6T462E1E
CategorieWasmachine
TaalNederlands
Grootte16282 MB