Electrolux EW5F4248N1 handleiding

180 pagina's
PDF beschikbaar

Handleiding

Je bekijkt pagina 111 van 180
Stand-by aðgerð
Stand-by aðgerðin afvirkjar heimilistækið
sjálfkrafa til að draga úr orkunotkun.
11. UMHIRÐA OG HREINSUN
AÐVÖRUN!
Sjá kafla um Öryggismál.
Heimilistækið er eingöngu ætlað fyrir
venjulega heimilisnotkun.
Lestu kaflann vandlega fyrir besta viðhald
og umhirðu.
11.1 Reglubundin hreinsunaráætlun
Regluleg hreinsun hjálpar til við að
framlengja líftíma þíns tækis.
Hafðu hurðina og þvottaefnisskammtarabb
opin til að fá loftræstingu og losna við rakann
inni í tækinu: þetta mun koma í veg fyrir
myglu og ólykt.
Ef tækið er ekki í notkun í langan tíma: lokaðu
fyrir vatnskranann og taktu tækið úr
sambandi.
Regluleg hreinsunaráætlun til viðmiðunar:
Kalkhreinsun Tvisvar á ári
Viðhaldsþvottur Einu sinni í mánuði
Þrífa dyrainnsigli Á tveggja mánaða fresti
Hreinsa tromlu Á tveggja mánaða fresti
Hreinsa þvottaefnis‐
skammtara
Á tveggja mánaða fresti
Hreinsa inntaksslönguna
og lokasíu
Tvisvar á ári
Eftirfarandi málsgreinar útskýra hvernig þú
ættir að hreinsa hvern hluta.
11.2 Að fjarlægja aðskotahluti
Áður en þú setur kerfið í gang skaltu
gæta þess að vasar séu tómir og að
lausar einingar séu bundnar upp.
Fjarlægðu aðskotahluti, (svo sem
málmklemmur, hnappa, mynt o.s.frv) sem þú
finnur ef til vill í innsigli dyra, síu
inntaksslöngu og tromlunni. Sjá
efnisgreinarnar „Innsigli dyra með tvöfaldri
gildrubrún“, „Tromlan hreinsuð“, og
„Inntaksslanga og lokasía hreinsuð“.
Vinsamlega hafðu samband við viðurkenndu
þjónustumiðstöðina ef þörf krefur.
11.3 Hreinsun að utan
Hreinsaðu heimilistækið eingöngu með mildri
sápu og volgu vatni. Þurrkaðu alla fleti
vandlega. Ekki nota ræstisvampa eða
hverskyns efni sem rispar.
VARÚÐ!
Ekki nota alkóhól, leysiefni eða
efnablöndur.
VARÚÐ!
Hreinsaðu ekki málmfleti með
klórblönduðu hreinsiefni.
11.4 Kalkhreinsun
Ef vatnið á þínu svæði er hart eða
meðalhart, mælum við með að þú notir
vatnsmýkingarefni fyrir þvottavélar.
Vatnið er hart eða meðalhart þegar
hörkustig þess nær yfir 8dH.
Kannaðu reglulega tromluna til að athuga
með kalkskán.
ÍSLENSKA 111

Bekijk gratis de handleiding van Electrolux EW5F4248N1, stel vragen en lees de antwoorden op veelvoorkomende problemen, of gebruik onze assistent om sneller informatie in de handleiding te vinden of uitleg te krijgen over specifieke functies.

Productinformatie

MerkElectrolux
ModelEW5F4248N1
CategorieWasmachine
TaalNederlands
Grootte17064 MB