Electrolux EFI953SY6S handleiding
Handleiding
Je bekijkt pagina 182 van 300

Fjarlægðu aðskotahluti, (svo sem
málmklemmur, hnappa, mynt o.s.frv) sem þú
finnur ef til vill í innsigli dyra, síum og
tromlunni. Sjá „Innsigli dyra með tvöfaldri
gildrubrún“, „Tromlan hreinsuð“,
„Frárennslisslangan hreinsuð“ og
„Inntaksslanga og lokasía hreinsuð“. Farðu
varlega með gluggatjöld. Fjarlægðu krókana
og settu gluggatjöldin í þvottanet eða
koddaver. Vinsamlega hafðu samband við
viðurkenndu þjónustumiðstöðina ef þörf
krefur.
15.3 Hreinsun að utanverðu
Hreinsaðu heimilistækið eingöngu með mildri
sápu og volgu vatni. Þurrkaðu alla fleti til fulls.
Ekki nota ræstisvampa eða hverskyns efni
sem rispar.
VARÚÐ!
Ekki nota alkóhól, leysiefni eða kemískar
vörur.
VARÚÐ!
Hreinsaðu ekki málmfleti með hreinsiefni
á klórgrunni.
15.4 Kalkhreinsun
Ef þú notar salt reglulega til að virkja
SoftWater-tæknina, er
kalkhreinsunaraðferðin sem lýst er í
þessari efnisgrein ekki nauðsynleg.
Ef vatnið á þínu svæði er hart eða
meðalhart, mælum við með að þú notir
vatnsmýkingarefni fyrir þvottavélar
(kalkhreinsun af og til).
Vatnið er hart eða meðalhart þegar
hörkustig þess nær yfir 8dH.
Kannaðu reglulega tromluna til að athuga
með kalkskán.
Fylgdu alltaf leiðbeiningunum sem er að
finna á umbúðum vörunnar.
15.5 Viðhaldsþvottur
Endurtekin og langvarandi notkun stuttra og
lághitakerfa getur valdið útfellingum
þvottaefnis, kuskleifum, bakteríuvexti og
myndun sýklaskánar og lífrænnar skánar inni
í tromlunni og í belgnum. Þetta getur myndað
vonda lykt og myglu.
Til að koma í veg fyrir þessar útfellingar og til
að hreinsa innri hluta heimilistækisins skal
keyra viðhaldsþvott að minnsta kosti
mánaðarlega:
1. Taktu allan þvottinn úr tromlunni.
2. Keyrðu bómullarkerfið á hæsta hitastigi
og með svolitlu þvottadufti, eða keyrðu
Machine Clean kerfið ef það er í boði.
15.6 Hurðarþétting
Þetta heimilistæki er útbúið sjálfhreinsandi
tæmingarkerfi, sem tæmir með vatninu léttar
lótrefjar sem detta úr fötunum. Skoðaðu
þéttinguna reglulega og hreinsaðu hana ef
nauðsyn krefur eins og lýst er á eftirfarandi
skýringarmynd. Hægt er að sækja
smápeninga, hnappa og aðra smáhluti í lok
lotunnar.
Hreinsaðu þegar þörf er á með
ammóníakkrem hreinisefni án þess að rispa
yfirborð þéttingarinnar
Fylgdu alltaf leiðbeiningunum sem er að
finna á umbúðum vörunnar.
15.7 Tromlan hreinsuð
Kannaðu tromluna reglulega til að koma í veg
fyrir óvelkomnar útfellingar.
182 ÍSLENSKA
Bekijk gratis de handleiding van Electrolux EFI953SY6S, stel vragen en lees de antwoorden op veelvoorkomende problemen, of gebruik onze assistent om sneller informatie in de handleiding te vinden of uitleg te krijgen over specifieke functies.
Productinformatie
| Merk | Electrolux |
| Model | EFI953SY6S |
| Categorie | Wasmachine |
| Taal | Nederlands |
| Grootte | 29742 MB |







