Electrolux EDI621O85O handleiding
Handleiding
Je bekijkt pagina 66 van 104

2. Bíddu í u.þ.b. 8 sekúndur.
3. Ýttu á og haltu inni hnöppunum (E) og (D)
samtímis. Skjárinn sýnir „Slökkt“ og
vísirinn fyrir vatnsílátið er afvirkjaður. Eftir
5 sek fer skjárinn aftur í venjulegan ham.
Til að virkja vísinn fyrir vatnsílátið aftur
skaltu fylgja aðgerðinni hér að ofan aftur.
Skjárinn sýnir „Kveikt“ og vísirinn fyrir
vatnsílátið er virkjaður.
8.3 Hljóðmerki kveikt/slökkt
Til að slökkva eða kveikja á hljóðmerkjunum
skaltu ýta samtímis á og halda inni
hnöppunum (A) og (C) í u.þ.b. 2 sekúndur.
8.4 Notkunartími í klukkustundum
Þessi aðgerð veitir þann möguleika að sýna
heildarvinnslutímann á heimilistækinu í
klukkustundum og er talið niður frá þeirri
stundu sem fyrst er kveikt á því.
Raunverulegur notkunartími lotanna er
sýndur (innifelur ekki hlé eða seinkaða
ræsingu).
Til að sjá þetta gildi skaltu gera eftirfarandi:
1. Kveiktu á heimilistækinu með því að ýta á
Slökkva/Kveikja hnappinn.
2. Ýttu á og haltu inni hnöppunum F og D í
nokkrar sekúndur.
3. Eftir 3 sekúndur sýnir skjárinn á
heimilistækinu heildarfjölda klukkustunda
í notkun: þ.e. ef notkunartíminn er 1276
sýnir skjárinn textann Hr í 2 sekúndur og
svo 12 í 2 sekúndur og í kjölfar þess 76.
Þetta gildi er sýnt sem röð tveggja
tölustafa í einu: fyrstu tveir tölustafirnir
tilgreina þúsundir og hundruð en seinni
tveir tilgreina tugi og einingar.
Til að fara úr þessum ham skal annað hvort
ýta á einhvern hnapp, snúa hnúðnum eða
slökkva á heimilistækinu.
8.5 Verksmiðjustillingar
Þessi aðgerð gerir það mögulegt að
endurheimta verksmiðjustillingar. Vistaðir
valkostir og virkir hamar verða endurstilltir.
Til að virkja þennan valkost skaltu fylgja
eftirfarandi skrefum:
1. Kveiktu á heimilistækinu með því að ýta á
Slökkva/Kveikja hnappinn.
2. Bíddu í u.þ.b. 8 sekúndur.
3. Ýttu á og haltu inni hnöppunum D og C í
nokkrar sekúndur.
4. Heimilisttækið mun staðfesta aðgerðina
með því að sýna
.
Ef þessi aðgerð tekst ekki (þetta gæti
verið vegna tímatakmarka eða rangrar
samsetningar hnappa) skaltu slökkva á
heimilistækinu og endurtaka rununa frá
upphafi.
9. FYRIR FYRSTU NOTKUN
Aftari læsingar tromlu eru fjarlægðar
sjálfvirkt þegar þurrkari er virkjaður í
fyrsta sinn. Mögulega heyrist einhver
hávaði.
Til að aflæsa aftari læsingar tromlu:
1. Kveiktu á heimilistækinu.
2. Stilltu á hvaða kerfi sem er.
3. Ýttu á hnappinn Ræsa/Hlé hnappinn.
Tromla byrjar að snúast. Aftari læsingar
tromlu eru sjálfvirkt afvirkjaðar.
Áður en þú notar heimilistækið til að
þurrka hluti:
• Hreinsaðu tromlu þurrkarans með rökum
klút.
• Ræstu 1 klukkustundar þvottakerfi með
rökum þvotti.
Í byrjun þurrkhringrásar (fyrstu 3-5 mín.)
gæti verið lítillega hærra hljóðstig. Þetta
er vegna þess að þjappan er að fara í
gang. Þetta er eðlilegt fyrir heimilistæki
sem eru knúin með þjöppu eins og
kæliskápa og frysta.
66 ÍSLENSKA
Bekijk gratis de handleiding van Electrolux EDI621O85O, stel vragen en lees de antwoorden op veelvoorkomende problemen, of gebruik onze assistent om sneller informatie in de handleiding te vinden of uitleg te krijgen over specifieke functies.
Productinformatie
Merk | Electrolux |
Model | EDI621O85O |
Categorie | Wasdroger |
Taal | Nederlands |
Grootte | 9572 MB |