Electrolux EDI610O85O handleiding

104 pagina's
PDF beschikbaar

Handleiding

Je bekijkt pagina 75 van 104
15. ÁBYRGÐARSKILMÁLAR
1.1 Samkvæmt skilmálum Félags
Raftækjasala.
Seljandi veitir kaupanda TVEGGJA ÁRA
ÁBYRGÐ frá tilgreindum afgreiðslutíma og er
hún fólgin í viðgerð eða endurnýjun á hverjum
þeim hluta þess sem áfátt kann að vera, enda
bendi líkur til þess að um framleiðslu- eða
efnisgalla sé að ræða. Ábyrgðin nær til efnis
og vinnulauna vegna hugsanlegra viðgerða,
auk ferðakostnaðar (laun og akstur)
viðgerðarmanns, allt að 15 km hvora leið, eða
flutnings tækis sömu vegalengd sé tækið
fyrirferðarmeira eða þyngra en að kaupandi
geti auðveldlega komið því sjálfur á verkstæði
seljanda eða þess, sem hann vísar til.
Kaupandi ber sjálfur kostnað af tilkynningu
um bilun svo sem símakostnað og annan
slíkan. Sé bilað tæki utan byggðarlags
seljanda, skal það borið undir hann, hvort
senda skuli það til viðgerðar eða kveðja til
nærstaddan viðgerðarmann.
Skuli tækið sent, er minnt á nauðsyn þess að
nota góðar og vel merktar umbúðir, fara að
fyrirmælum leiðarvísis, þegar hann kveður á
um sérstakan flutningsbúnað og möguleikana
á að tryggja tækið gegn flutningsskemmdum.
Ennfremur skal fylgja lýsing á bilun. Skuli
kvaddur til viðgerðarmaður, afgreiðir seljandi
varahluti til viðgerðarinnar á sinn kostnað
gegn því að honum séu endursendir hinir
gölluðu hlutir ef hann óskar.
Vinnulaun og ferðakostnað viðgerðarmanns
að ofangreindu marki (15 km) greiðir seljandi
eftir sundurliðuðum reikningi viðgerðamanns
enda beri reikningurinn með sér eftirtalin
atriði:
1. Heiti tækis, gerð, númer og
afgreiðslutíma, samkvæmt þessu
skírteini.
2. Viðgerðardag og lýsingu á framkvæmdri
viðgerð.
3. Fullt nafn og heimilisfang viðgerðarmanns
eða fyrirtækis þess sem viðgerðina
annaðist.
Ábyrgðin nær ekki til bilana, sem
framleiðanda eða seljanda verður ekki um
kennt, svo sem bilana, sem stafa af flutningi,
rangri meðferð eða misnotkun, slælegu
viðhaldi, slysni eða óhöppum,
náttúruhamförum, truflunum á rafkerfi hússins
eða veitunnar o.s.frv.
Ábyrgðin nær heldur ekki til óbeins tjóns
vegna hugsanlegra galla á tækinu, en
kaupanda er bent á möguleikana á að tryggja
sig gegn slíku hjá tryggingafélögum.
Skilyrði fyrir ábyrgðinni eru almenns eðlis, svo
sem að galli sé tilkynntur strax og hans kann
að verða vart og að ekki hafi verið átt við
tækið af aðilum óviðkomandi seljanda, nema í
samráði við hann.
ÍSLAND
Þjónusta á AEG heimilistækjum fyrir
höfudborgarsvæðið er hjá
Raftækjaþjónustunni Lagmúla 8, simi
553-7500 og rafmagnsverkstæðum sem
tengd eru umboðsmönnum Bræðranna
Ormsson ehf. um land allt.
Bræðurnir Ormsson ehf.
Lágmúla 8, póstholf 8760
128 Reykjavík
Sími: 530-2800
Fax: 530-2806
www.ormsson.is
16. UMHVERFISMÁL
Endurvinna þarf öll efni merkt tákninu .
Setjið umbúðirnar í viðeigandi sorpílát til
endurvinnslu. Leggið ykkar að mörkum til
verndar umhverfinu og heilsu manna og dýra
og endurvinnið rusl sem fylgir raftækjum og
ÍSLENSKA 75

Bekijk gratis de handleiding van Electrolux EDI610O85O, stel vragen en lees de antwoorden op veelvoorkomende problemen, of gebruik onze assistent om sneller informatie in de handleiding te vinden of uitleg te krijgen over specifieke functies.

Productinformatie

MerkElectrolux
ModelEDI610O85O
CategorieWasdroger
TaalNederlands
Grootte9446 MB