Electrolux EDI610O85O handleiding
Handleiding
Je bekijkt pagina 67 van 104

11. ÁBENDINGAR OG GÓÐ RÁÐ
11.1 Þvotturinn undirbúinn
Þegar þú hleður tromluna upp að
hámarksgetu sem tilgreind er fyrir
viðkomandi kerfi mun það stuðla að
orkusparnaði.
Oft eru flíkurnar í hnút og flæktar saman
eftir þvottalotuna.
Þurrkun á hnýttum og flæktum flíkum er
óskilvirk.
Til að tryggja almennilegt loftflæði og
jafna þurrkun er mælt með því að hrista
og setja eina flík í einu inn í þurrkarann.
Til að tryggja almennilega þurrkun:
• Lokaðu rennilásunum.
• Lokaðu festingunum á sængurverum.
• Ekki þurrka lausa borða eða bönd (til
dæmis borða á svuntum). Bittu þá áður en
þú byrjar þvottakerfið.
• Fjarlægðu alla hluti úr vösum.
• Snúðu flíkum með innra lag úr bómull á
ranghverfuna. Bómullarlag verður að snúa
út á við.
• Stilltu alltaf þvottakerfi sem hentar fyrir
tegund þvottar.
• Settu ekki ljósa og dökka liti saman.
• Notaðu viðeigandi kerfi fyrir bómull, peysur
og prjónafatnað til að draga úr að þau
hlaupi.
• Farðu ekki umfram þá hámarkshleðslu
sem gefin er upp í kaflanum fyrir
þvottakerfi eða sýnd er á skjánum.
• Þurrkaðu aðeins þvott sem hentar fyrir
þurrkun í þurrkara. Sjá þvottamiðann á
flíkunum.
• Ekki þurrka stórar og litlar flíkur saman.
Litlar flíkur kunna að festast inni í stóru
flíkunum og verða áfram blautar.
• Hristu stærri flíkur eða efni áður en þú
setur þær í þurrkarann. Það er gert til að
forðast raka fleti inni í efninu eftir þurrkun.
Þvottamiði Lýsing
Þvottur hentar fyrir þurrkun í þurrkara.
Þvottur hentar fyrir þurrkun í þurrkara á hærra hitastigi.
Þvottur hentar aðeins fyrir þurrkun í þurrkara á lágu hitastigi.
Þvottur hentar ekki fyrir þurrkun í þurrkara.
12. UMHIRÐA OG HREINSUN
12.1 Reglubundin hreinsunaráætlun
Regluleg hreinsun hjálpar til við að
framlengja líftíma þíns tækis.
Ef heimilistækið er ekki í notkun í langan tíma
skaltu taka það úr sambandi.
Regluleg hreinsunaráætlun til viðmiðunar:
Hreinsun á síu
Þegar vísirinn leiftrar
Tæmdu vatnsílátið
Þegar vísirinn leiftrar
ÍSLENSKA 67
Bekijk gratis de handleiding van Electrolux EDI610O85O, stel vragen en lees de antwoorden op veelvoorkomende problemen, of gebruik onze assistent om sneller informatie in de handleiding te vinden of uitleg te krijgen over specifieke functies.
Productinformatie
| Merk | Electrolux |
| Model | EDI610O85O |
| Categorie | Wasdroger |
| Taal | Nederlands |
| Grootte | 9446 MB |







